"Ljósfaðir" og frjósemisdans

"Ljósfaðir" og frjósemisdans

Kaupa Í körfu

Ég hef tekið á móti tæplega fjögur hundruð börnum frá því ég byrjaði að starfa sem ljósmóðir fyrir tuttugu árum og vissulega tel ég mig eiga svolítið í hverju og einu þeirra," segir Denis Walsh frá Bretlandi en hann hélt í síðustu viku nokkur erindi á ráðstefnu á Landspítalanum hjá Ljósmæðrafélagi Íslands. Enginn karlmaður sinnir störfum ljósmóður á Íslandi um þessar mundir en Denis segir að karlar í þessu starfi séu um eitt hundrað í Bretlandi. MYNDATEXTI: Denis Walsh hefur starfað sem ljósmóðir í tuttugu ár.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar