Íslensku menntaverðlaunin

Íslensku menntaverðlaunin

Kaupa Í körfu

ÁRTÚNSSKÓLI í Reykjavík hlaut í gær Íslensku menntaverðlaunin 2006. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Hjallaskóla í Kópavogi, en þetta er í annað sinn sem þau eru veitt. "Ég er mjög ánægður með að Íslensku menntaverðlaunin hafi nú þegar, þótt ung séu, fest sig í sessi. Þau eru mikilvæg viðurkenning á því merkilega starfi sem unnið er í grunnskólunum," sagði Ólafur Ragnar í samtali við Morgunblaðið. MYNDATEXTI Ólafur Ragnar Grímsson afhendir nemendum Ártúnsskóla verðlaunin.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar