Subaru Impresa bílar á bílaplani Ingvars Helgasonar

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Subaru Impresa bílar á bílaplani Ingvars Helgasonar

Kaupa Í körfu

KVARTMÍLUKLÚBBURINN í samstarfi við Ingvar Helgason hf. var með uppákomu við húsakynni bílaumboðsins sl. laugardag. "Það hefur verið mikil umræða um hraðakstur undanfarið og þar sem við seljum hraðskreiða bíla, Subaru Impresa Turbo, vildum við leggja okkar af mörkum í samstarfi við kvartmíluklúbbinn til að bæta umferðaröryggi og draga úr hraðakstri á götum borgarinnar," segir Rúnar H. Bridde, sölu- og markaðsstjóri hjá Ingvari Helgasyni. Liður í þessu átaki var sú ákvörðun bílaumboðsins að gefa eigendum Subaru Impresa Turbo-bílanna ársaðild að kvartmíluklúbbnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar