Egill Tómasson, dúxinn í MS.

Jim Smart

Egill Tómasson, dúxinn í MS.

Kaupa Í körfu

"EKKI einblína bara á námið, hafa nóg annað að gera líka til að hvíla sig frá náminu," segir Egill Tómasson, dúxinn í MS í ár, þegar hann er spurður hvað hann telji að sé besta leiðin til að standa sig vel í skólanum. Hann fékk 9,8 í meðaleinkunn, tólf tíur og sex 9,5. Egill er á fullu í fótbolta þar sem hann spilar með meistaraflokki Þróttar auk þess sem hann mun þjálfa þriðja flokk karla í sumar. MYNDATEXTI Egill Tómasson fékk 9,8 í meðaleinkunn í MS í vor.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar