Ökuhermir

Eyþór Árnason

Ökuhermir

Kaupa Í körfu

STURLA Böðvarsson samgönguráðherra vígði fyrsta ökuherminn á Íslandi í gær. Ökuhermirinn er sérstaklega gerður til ökukennslu en í honum geta ökunemar fengið þjálfun í akstri við ýmiss konar aðstæður. Samgönguráðherra fékk að reyna hvernig er að aka undir áhrifum en hermirinn getur líkt eftir þeim áhrifum sem áfengi hefur á skilningarvitin. Gekk ráðherra nokkuð vel að komast leiðar sinnar þrátt fyrir að hafa "drukkið" fjóra bjóra og urðu engin slys. MYNDATEXTI Sturla Böðvarsson samgönguráðherra vígði í gær nýjan ökuhermi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar