Katrín og Arnar Logi.

Jim Smart

Katrín og Arnar Logi.

Kaupa Í körfu

Það verður enginn svikinn af því að fylgjast með öllum efnilegu knöpunum í barnaflokki á landsmótinu og á meðal keppenda verða uppeldissystkinin Arnar Logi Lúthersson, 13 ára, og Katrín Sveinsdóttir, 11 ára. Þessir samrýmdu ungu krakkar keppa fyrir Hörð í Mosfellsbæ og þau eru komin með verðskuldaðan landsmótsfarmiða en hjá Herði komast sex manns á mótið í hverjum flokki. Þau eru afar ánægð með árangurinn en segja það svolítið skrýtið að þau æfi nú bæði fyrir landsmót. MYNDATEXTI Uppeldissystkinin Katrín og Arnar Logi eru komin með landsmótsfarmiða í barnaflokknum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar