Varist mávinn...við tjörnina

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Varist mávinn...við tjörnina

Kaupa Í körfu

ENGU er líkara en þessi kona sem gaf öndunum á Reykjavíkurtjörn brauð í gær sé komin inn í senu úr mynd Alfreds Hitchcock, The Birds, þar sem fuglarnir taka upp á því að ráðast á fólk. Hún var þó væntanlega í lítilli hættu, þótt mávarnir hafi hegðað sér ógnandi, enda höfðu þeir eflaust meiri áhuga á að næla sér í brauðmolana sem ætlaðir voru öndum, svönum eða gæsum en að ráða henni bana.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar