Þorvaldur Árni og Rökkvi

Eyþór Árnason

Þorvaldur Árni og Rökkvi

Kaupa Í körfu

Keppni á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum er komin á fullt flug. Þuríður Magnúsína Björnsdóttir og Eyþór Árnason fylgjast með gangi mála í Skagafirðinum. Rjómablíða er á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum og um fjögur þúsund manns eru mætt á svæðið og að sögn Huldu G. Geirsdóttur, fjölmiðlafulltrúa mótsins, hefur annar eins fjöldi ekki fyrr verið saman kominn svo snemma á landsmóti. Hún segir allt hafa gengið eins og í sögu hingað til en búist er við að mikill fjöldi streymi á mótið í dag. MYNDATEXTI: Rökkva frá Hárlaugsstöðum og Þorvaldi Árna Þorvaldssyni var vel fagnað í B-flokki gæðinga, enda efstir. Þeir hófu titilvörnina með látum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar