Landsmót hestamanna 2006

Eyþór Árnason

Landsmót hestamanna 2006

Kaupa Í körfu

Keppni á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum er komin á fullt flug. Þuríður Magnúsína Björnsdóttir og Eyþór Árnason fylgjast með gangi mála í Skagafirðinum. Rjómablíða er á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum og um fjögur þúsund manns eru mætt á svæðið og að sögn Huldu G. Geirsdóttur, fjölmiðlafulltrúa mótsins, hefur annar eins fjöldi ekki fyrr verið saman kominn svo snemma á landsmóti. Hún segir allt hafa gengið eins og í sögu hingað til en búist er við að mikill fjöldi streymi á mótið í dag. MYNDATEXTI: Geisli frá Sælukoti og Steingrímur Sigurðsson eru efstir eftir forkeppnina í A-flokki, skammt er þó í Kraft frá Bringu og Þórarin Eymundsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar