Eignir varnarliðsins seldar

Jim Smart

Eignir varnarliðsins seldar

Kaupa Í körfu

HÚSGÖGN, tölvur, verkfæraskápar, skrifborð, skrifstofuvörur og bílar varnarliðsins eru á meðal þess sem kaupþyrstir Íslendingar geta fest kaup á í gamla Blómavalshúsinu í Sigtúni í sumar og fram í nóvember en þar verða eignir varnarliðsins boðnar til sölu. Það er Geymslusvæðið ehf. sem sér um að selja vörurnar og lofar Ástvaldur Óskarsson, framkvæmdastjóri Geymslusvæðisins, viðskiptavinum hagstæðu verði. Salan hefst á laugardaginn klukkan 10 og hefur Ástvaldur þegar sankað að sér 20 gámum frá varnarliðinu sem er í óða önn að pakka saman og undirbúa brottför frá Íslandi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar