Landsmót hestamanna 2006

Eyþór Árnason

Landsmót hestamanna 2006

Kaupa Í körfu

Yfirlitssýning kynbótahryssna fór fram á landsmótinu í gær og breyttist staða efstu hryssna nokkuð þegar á heildina er litið. Hin litfagra glæsihryssa Hvíta-Sunna frá Sauðárkróki sem Sigurður V. Matthíasson sýndi er efst í 7 vetra flokknum og hlýtur aðaleinkunnina 8,55. Önnur er Fjörgyn frá Kjarnholtum I sem skaust fram úr Álfrúnu frá Reykjavík, þó er afar mjótt á munum, Fjörgyn er með 8,48 og Álfrún með 8,47. Daníel Jónsson sýndi þá fyrrnefndu og Steingrímur Sigurðsson sýndi Álfrúnu. MYNDATEXTI: Þorvaldur Árni Þorvaldsson og hestagullið Blíða frá Flögu eru efst í töltinu eftir forkeppni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar