Slys við Grundarfjörð

Alfons Finnsson

Slys við Grundarfjörð

Kaupa Í körfu

TVENNT var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík í gærmorgun eftir alvarlegt bílslys á Snæfellsnesvegi. Ökumaður bifreiðarinnar slasaðist alvarlega en þó ekki lífshættulega. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Ólafsvík átti slysið sér stað við Hólslæk sem er skammt frá Kvíabryggju. Tveimur bifreiðum var ekið í sömu átt en þegar sú fyrri nam snögglega staðar, svo farþegi í henni gæti kastað upp, missti ökumaður aftari bifreiðarinnar vald á henni með þeim afleiðingum að bifreiðin fór út af veginum og valt. Þrennt var í bifreiðinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar