Lögreglubíll valt

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Lögreglubíll valt

Kaupa Í körfu

Lögreglubíll frá Lögreglunni í Hafnarfirði lenti út af veginum og valt á Reykjanesbraut á móts við álverið í Straumsvík um kvöldmatarleytið í gær. Tveir lögreglumenn voru í bílnum og sluppu þeir ómeiddir eftir slysið. Bílnum var ekið með forgangsljósum er slysið varð en lögreglumennirnir voru á leið í útkall skammt frá, þar sem tilkynnt hafði verið um slagsmál. Samkvæmt upplýsingum lögreglu virtust slagsmálin alvarlegri samkvæmt útkallinu en raun reyndist og því var bílnum ekið með forgangsljósum. Missti ökumaður stjórn á bílnum með fyrrgreindum afleiðingum. Lögreglubíllinn er mikið skemmdur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar