Félag sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara

Félag sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara

Kaupa Í körfu

RÚMLEGA helmingur Íslendinga, eða um 53%, hefur nýtt sér þjónustu sjúkraþjálfara samkvæmt könnun sem Félagsvísindastofnun hefur unnið fyrir Félag sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara (FSSS). Samkvæmt könnuninni telja 63% þeirra sem leitað hafa til sjúkraþjálfara að meðferðin hafi dregið úr notkun verkjastillandi og bólgueyðandi lyfja. Þá segja 83% að meðferðin hafi haft frekar góð eða mjög góð áhrif á starfsþrekið þegar til lengri tíma er litið. 97,4% aðspurðra voru annað hvort jákvæð eða mjög jákvæð gagnvart starfi sjúkraþjálfara, en meðal þeirra sem höfðu leitað til sjúkraþjálfara voru 87% ánægð með meðferðina. MYNDATEXTI: Kristján Ragnarsson, formaður FSSS, kynnir niðurstöður könnunarinnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar