Sumartónleikar við Mývatn

Birkir Fanndal Haraldsson

Sumartónleikar við Mývatn

Kaupa Í körfu

Mývatnssveit | Tuttugasta starfsár Sumartónleika við Mývatn hófst á laugardagskvöldið með fjölbreyttri dagskrá íslenskra sönglaga. Flytjendur voru Svava Kristín Ingólfsdóttir mezzósópran, Jóhanna Ósk Valsdóttir alt, Magnús Ragnarsson, tenór og Bjartur Logi Guðnason bassi. Þau sungu hvert í sínu lagi og líka saman. Einnig léku Magnús og Bjartur á kirkjuorgelið og píanó en Jóhanna Ósk á fiðlu í nokkrum verkanna. Flutt voru bæði fornir íslenskir söngvar svo og seinni tíma verk og nútímaverk sem ekki hafa fyrr heyrst í Reykjahlíðarkirkju.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar