TravelJohn, þvag- og hægðapokar

TravelJohn, þvag- og hægðapokar

Kaupa Í körfu

Nú er ekkert mál að verða mál," segir Ólafur Magnússon eigandi heildverslunarinnar Donnu. Hann hefur nýlega sett í sölu tilvalinn búnað fyrir þá sem vilja ekki gera þarfir sínar úti í náttúrunni á ferðalaginu. Þessi þarfa lausn nefnist TravelJohn og eru pokar fyrir þvag og hægðir. Pokinn fyrir hægðirnar er með sérstökum stút sem gerir losun í hann auðvelda fyrir bæði kynin. Í botni pokans er efni sem gerir þvag að geli á augabragði og eyðir lykt. Pokinn tekur 0,8 lítra og má nota hann aftur og aftur þar til hann er fullur, hann hentar líka fyrir uppköst. Pokinn lekur hvorki né lyktar og það má henda honum í sorpið því hann er umhverfisvænn. Pokinn fyrir hægðirnar er stærri og passar ofan í fötu eða ferðaklósett og hefur sömu kosti og þvagpokinn. MYNDATEXTI: TravelJohn, þvag- og hægðapokar, geta verið tilvaldir félagar í útileguna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar