Café Sumarlína

Albert Kemp

Café Sumarlína

Kaupa Í körfu

Fáskrúðsfjörður | Nýir eigendur eru komnir að Café Sumarlínu á Fáskrúðsfirði. Eru það hjónin Björg Elíesersdóttir og Óðinn Magnason sem hér sjást á mynd ásamt syninum Guðlaugi Magna. Þau hafa hugsað sér að vera með venjulegan heimilismat á boðstólum auk smárétta, jafnframt rekstri á kaffihúsi og bar. Staðurinn hentar vel fyrir smærri veislur og er það hugmynd þeirra að bjóða upp á slíkt. Staðurinn verður opnaður fimmtudaginn 13. júlí.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar