Kajakkonur

Sverrir Vilhelmsson

Kajakkonur

Kaupa Í körfu

MIKIL vakning er meðal kvenna í sjókajakróðri og hafa sérstök námskeið verið haldin á Geldinganesi að undanförnu fyrir konur undir handleiðslu Hadas Feldman. Hún er meðal fremstu sjókajakræðara í heimi og er fyrsta konan sem heldur kajaknámskeið á Íslandi. Dvelur hún hér sumarlangt við kennslu á vegum Seakayak Iceland sem er í eigu Þorsteins Sigurlaugssonar en hann varð fyrsti íslenski kajakræðarinn til að ljúka 5 stjörnu kajakprófi með breska BCU-staðlinum í fyrra. MYNDATEXTI: Hadas Feldman, önnur vil hægri, ásamt kajaknemum sínum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar