Frönsku skúturnar halda heim

Gunnar Kristjánsson

Frönsku skúturnar halda heim

Kaupa Í körfu

Grundarfjörður | Skúturnar 19 sem þátt taka í siglingakeppninni Skippers d'Islande voru ræstar í Grundarfjarðarhöfn kl. 17 í fyrradag. Skömmu síðar lagði skólaskip franska sjóhersins gólettan L'Etoile af stað í humátt á eftir keppnisskútunum. För þeirra er nú heitið til hafnar í Paimpol á ný en þaðan lögðu þær af stað 24. júní sl. Frá Reykjavík var síðan haldið til Grundarfjarðar 8. júlí og nú er komið að heimferð á ný. Fyrir höndum er um 1300 sjómílna sigling og gert ráð fyrir að þær fyrstu verði í höfn í Paimpol 21. júlí. MYNDATEXTI: Glæsileg góletta

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar