Mislæg gatnamót

Mislæg gatnamót

Kaupa Í körfu

VERKTAKARNIR Jarðvélar ehf. og Eykt ehf. áttu lægsta boð í byggingu mislægra gatnamóta á mótum Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar. Byggð verður brú með einni akrein í hvora átt og eru verklok áætluð 1. nóvember. Á máli vegagerðarinnar rísa gatnamótin þar sem Nesbraut tengist Hringvegi, en Nesbraut gengur í Reykjavík undir nöfnunum Hringbraut, Miklabraut og Ártúnsbrekka áður en hún verður að Vesturlandsvegi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar