Sjóstöng frá Ólafsvík

Kristinn Benediktsson

Sjóstöng frá Ólafsvík

Kaupa Í körfu

Fjörutíu keppendur tóku þátt í sjóstangaveiðimóti í rjómablíðu í Ólafsvík um helgina á vegum Sjósnæ. Kristinn Benediktsson fylgdi þeim nokkrum eftir, orðhvötum sjómönnum sem kalla ekki allt ömmu sína. N ú er eitthvað svaka þungt á," hrópaði Þiðrik Unason, skipstjóri og sjósportari, þar sem hann barðist við stöngina, sem stóð kengbogin út fyrir borðstokkinn á Sverri SH 126 frá Ólafsvík. Félagar hans þrír í hollinu gátu ekki fleygt frá sér sínum stöngum enda verða menn að berjast við sínar ófreskjur sjálfir á sjóstangaveiðimótum eins og því sem stóð yfir í Ólafsvík á vegum Sjósnæ um helgina. MYNDATEXTI: Félagarnir um borð í Sverri SH ánægðir með aflann í lok móts en þeir unnu allir til verðlauna. F.v. eru það Ari, sem fékk stærsta ufsann, Gísli, sem fékk stærsta karfann, Helgi fékk stærsta kolann, Þiðrik, sem var í sigursveitinni, og loks Örvar skipstjóri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar