Bjarga vélarvana bát við Vík í Mýrdal

Jónas Erlendsson

Bjarga vélarvana bát við Vík í Mýrdal

Kaupa Í körfu

BJÖRGUNARSVEITIN Víkverji frá Vík í Mýrdal var kölluð út vegna vélarvana báts sem staddur var suður af Dyrhólaey í gær, rúma sex kílómetra frá Vík. Um var að ræða tólf metra langa skemmtisnekkju og var hún vélarvana vegna olíuleysis. Um borð voru þrír Danir á leið til Vestmannaeyja frá Færeyjum og óskuðu þeir eftir aðstoð svo þeir kæmust til hafnar í Eyjum. Kristján Þórðarson og Magnús Kristjánsson fóru á gúmbát með 240 lítra af olíu að snekkjunni. MYNDATEXTI: Magnús Kristjánsson og Kristján Þórðarson hjá björgunarsveitinni Víkverja í Vík undirbúa ferð með hráolíu að bátnum sem varð vélarvana.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar