Ólafur Þórðarson, Vignir Jóhannsson og Jónína Guðnadóttir

Ólafur Þórðarson, Vignir Jóhannsson og Jónína Guðnadóttir

Kaupa Í körfu

Á SÍÐASTA ári ákvað Landsvirkjun að efna til samkeppni um útilistaverk en stefnt er að því að verkum verði komið fyrir annars vegar á svæðinu þar sem stíflur Kárahnjúkavirkjunar mynda Hálslón og hins vegar við mannvirki tengd Fljótsdalsstöð undir Teigsbjargi í Fljótsdal. Í samkeppni um verk sem rísa eiga í Fljótsdal var tillögum skilað undir dulnefni. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar, bárust tæplega tuttugu tillögur, fimm voru valdar úr þeim hópi og fengu höfundar þeirra peningastyrki til að útfæra þær frekar. MYNDATEXTI: Listamennirnir Ólafur Þórðarson, Vignir Jóhannsson og Jónína Guðnadóttir. Þeirra tillögur verða útfærðar frekar ásamt tillögu Helga Kristinssonar sem er staddur erlendis og var því ekki við opnunina í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar