Malbikun á Hellisheiði

Malbikun á Hellisheiði

Kaupa Í körfu

SUMARIÐ er tími malbikunarframkvæmda og þá er gjarnan unnið hörðum höndum að því að bæta slitlag á vegum landsins. Þessi mynd var tekin í gær Kömbunum í nágrenni Hveragerðis, en þar voru verkamenn önnum kafnir við að malbika veginn. Nokkur umferð var um svæðið meðan á framkvæmdunum stóð enda leggja margir land undir fót um hásumarleyfistímann. Brýnt er að ökumenn sýni varúð við slíkar aðstæður og aki gætilega þar sem vinna stendur yfir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar