Fornleifarannsóknir á Gásum

Margrét Þóra Þórsdóttir

Fornleifarannsóknir á Gásum

Kaupa Í körfu

MIKIL starfsemi hefur verið á Gásum, skammt norðan Akureyrar, í kringum árið 1300. Fornleifarannsókn sem staðið hefur yfir í sumar leiðir það í ljós. Gásir voru miðstöð fyrir útflutning á brennisteini, sem var ein dýrasta og jafnframt fágætasta verslunarvaran á miðöldum. Minjasafnið á Akureyri, Þjóðminjasafn Íslands og Fornleifastofnun Íslands hafa staðið fyrir fornleifarannsóknum á Gásakaupstað síðan árið 2001, nú í sumar hefur síðasta uppgraftarlotan í þessu verkefni staðið yfir, rannsókn á svæðinu lýkur 12. ágúst næstkomandi. MYNDATEXTI: Kirkjan var veldistákn norskra kaupmanna. Dr. Orri Vésteinsson stendur í kirkjutóftinni og fornleifafræðingarnir Oddgeir Hansson og Rúnar Leifsson eru við mælingar og skráningu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar