Alda Steinarsdóttir fann maðk í baunadós

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Alda Steinarsdóttir fann maðk í baunadós

Kaupa Í körfu

Það var heldur óskemmtilegur gestur sem Alda Steinarsdóttir fékk í maísbaunadósinni sem hún keypti um daginn. Hún var að búa sér til eggjaköku í kvöldmatinn og þar sem hún mokaði maísbaununum úr dósinni á pönnuna mætti hún allt í einu tveimur svörtum og sorgmæddum augum. Þar var á ferðinni lítill og látinn grasmaðkur sem hafði fengið að fljóta með maísnum um heimsins höf. "Ég var að gera mér eggjaköku, opnaði dósina og tíndi hægt og rólega úr henni með skeið og í miðri dósinni sé ég maðkinn. Þetta var rúmlega sentimetra langur grasmaðkur, steindauður og mér sýndist það á honum að hann hafi verið soðinn með baununum því hann var svo gulur og aumingjalegur. MYNDATEXTI: Alma rakst á orm þegar hún opnaði dós með gulum baunum frá Euroshopper.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar