Ingi Pétursson

Margrét Þóra Þórsdóttir

Ingi Pétursson

Kaupa Í körfu

SÖGUSIGLINGAR um Eyjafjörð, um borð í eikarbátnum Húna II verða í boði nú í ágúst, alls þrjár ferðir, næstu miðvikudagskvöld og er sú fyrsta 9. ágúst næstkomandi og svo tvo miðvikudagskvöld þar á eftir. Þá verður boðið upp á siglingu með Húna nú um komandi verslunarmannahelgi, tvær á dag, frá föstudegi til sunnudags. Þorsteinn Pétursson, sem er í forsvari fyrir Hollvinafélagið Húni II, kynnti áformin á siglingu um Pollinn í gærdag, en þær eru tilkomnar m.a. vegna mikils áhuga sem fólk hefur sýnt bátnum í sumar. Hann hefur verið opinn almenningi frá kl. 13 til 18 á daginn og fjölmargir, um 1400 manns, hafa brugðið sér um borð og skoðað bátinn og sumir farið í stutta siglingu. MYNDATEXTI: Fiskinn Ingi Pétursson hafði erindi sem erfiði, hann náði að draga inn einn, enda vanur maður, var á ÚA-togurunum í gamla daga. Myndið þið brottkastið, hrópaði Víðir Benediktsson, fyrrverandi skipstjóri á Kaldbak, þegar Ingi tók sig til og fleygði fengnum fyrir borð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar