Þorsteinn Pétursson

Margrét Þóra Þórsdóttir

Þorsteinn Pétursson

Kaupa Í körfu

SÖGUSIGLINGAR um Eyjafjörð, um borð í eikarbátnum Húna II verða í boði nú í ágúst, alls þrjár ferðir, næstu miðvikudagskvöld og er sú fyrsta 9. ágúst næstkomandi og svo tvo miðvikudagskvöld þar á eftir. Þá verður boðið upp á siglingu með Húna nú um komandi verslunarmannahelgi, tvær á dag, frá föstudegi til sunnudags. Þorsteinn Pétursson, sem er í forsvari fyrir Hollvinafélagið Húni II, kynnti áformin á siglingu um Pollinn í gærdag, en þær eru tilkomnar m.a. vegna mikils áhuga sem fólk hefur sýnt bátnum í sumar. Hann hefur verið opinn almenningi frá kl. 13 til 18 á daginn og fjölmargir, um 1400 manns, hafa brugðið sér um borð og skoðað bátinn og sumir farið í stutta siglingu. MYNDATEXTI: Sögusigling Þorsteinn Pétursson, Steini Pje, var einn talsmanna þess að varðveita eikarbátinn Húna II, en hann er einn af síðustu bátum þessarar tegundar sem smíðaðir voru hér á landi. Nú í ágúst verða í boði sögusiglingar með bátnum og þá gefst gestum tækfæri á að sigla með bátnum um komandi helgi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar