Íslandsmót í holukeppni

Íslandsmót í holukeppni

Kaupa Í körfu

ÍSLANDSMÓTIÐ í holukeppni í golfi hófst í gær á Grafarholtsvelli í Reykjavík en fátt óvænt átti sér stað í fyrstu tveimur umferðunum í karlaflokki, í 64 manna úrslitum og 32 manna úrslitum. Í dag hefjast 16 manna úrslit og eftir hádegi verður fjórða umferðin leikin, þar sem 8 kylfingar leika um sæti í undanúrslitum. Aðeins 8 konur eru skráðar til leiks og hefja þær leik í dag. Ottó Sigurðsson úr GKG hefur titil að verja í karlaflokki og Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR í kvennaflokki. MYNDATEXTI: Atli Elíasson leikur gegn Sigurpáli Geir Sveinssyni í 16 manna úrslitum Íslandsmótsins í holukeppni í dag í Grafarholti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar