Síli EA á Pollinum

Margrét Þóra Þórsdóttir

Síli EA á Pollinum

Kaupa Í körfu

Akureyri | Þeir eru þó nokkrir íbúarnir á Akureyri sem eiga bát eða hafa yfir einum slíkum að ráða. Vita fátt betra til að slaka á frá amstri dagsins en að róa spölkorn út á Poll og athuga hvort hann bíti á. Þessir tveir heiðurfélagar réru á bátnum Síli EA og renndu fyrir fisk um leið og þeir nutu veðurblíðunnar. Það virtist bera nokkuð vel í veiði hjá félögunum, í það minnsta var fuglinn ekki lengi að renna á lyktina, þeir komu að í hóp og biðu þess að gert yrði að og slori fleygt útbyrðis. Og voru ekki lengi að hremma það sem í sjóinn fór.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar