Hrafnkelsdalur

Sigurður Aðalsteinsson

Hrafnkelsdalur

Kaupa Í körfu

Egilsstaðir | Félag áhugamanna um Hrafnkelssögu efnir til Hrafnkelssögudags á morgun, laugardag. Dagurinn er nú haldinn í fyrsta sinn og vonast skipuleggjendur til þess að hann verði að árlegum viðburði. Boðið er upp á rútuferð frá Egilsstöðum kl. 13 í Aðalból í Hrafnkelsdal undir leiðsögn Páls Pálssonar frá Aðalbóli. Klukkan 14 verður lagt upp frá brúnni við Brú undir leiðsögn Önnu Guðnýjar Halldórsdóttur, svokallaða Aðfaraleið, sem er stikuð leið frá Hálsenda hjá Brú að Aðalbóli. MYNDATEXTI: Gengið verður um söguslóðir í Hrafnkelsdal á morgun undir leiðsögn heimafólks. Þá er boðið upp á rímnaflutning og faxagrill.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar