Númeraplötur

Númeraplötur

Kaupa Í körfu

GLÖGGIR vegfarendur hafa tekið eftir því að undanförnu að bílum með gular bílnúmeraplötur hefur fjölgað töluvert á götunum. Margir muna eftir gömlu gulu varnarliðsplötunum en ekki er um þær að ræða heldur nýja tegund sem sett var í umferð í kjölfar reglugerðar sem sett var í mars síðastliðnum af samgönguráðherra. Þar kveður á um að bifreiðar, sem ætlaðar eru til sérstakra nota og eru undanskildar gjaldskyldu vegna olíugjalds, þ.e. nota litaða dísilolíu, skuli bera númeraplötur með gulum grunni og brúnum stöfum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar