Breiðablik - Valur

Jim Smart

Breiðablik - Valur

Kaupa Í körfu

BREIÐABLIK hefur gefið út spilastokk með myndum af leikmönnum Íslandsmeistara Breiðabliks í knattspyrnu kvenna. Þetta er gert til að fjármagna þátttöku Breiðabliksliðsins í Evrópukeppni félagsliða, sem Breiðablik taka þátt í og leika Blikar þrjá leiki í næstu viku í Austurríki, þar sem heimaliðið SC Neulengbach, 1. Dezembro frá Portúgal, Newtownabbey Strikers frá Norður-Írlandi og Breiðablik leika saman í riðli. Möguleikar Blika á sigri í riðlinum eru nokkuð góðir. MYNDATEXTI: Greta Mjöll Samúelsdóttir, hin marksækna Blikastúlka, sést hér hafa betur í viðureign við Valsstúlkuna Málfríði Ernu Sigurðardóttur, í leik liðanna í Kópavogi í vikunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar