Esjurætur

Jim Smart

Esjurætur

Kaupa Í körfu

Esjan | Þeir sem hafa lagt leið sína upp á Esjuna í sumar hafa eflaust tekið eftir því að göngustígurinn neðst á fjallinu hefur tekið miklum endurbótum og er í raun allt annar en hann var. Sú var tíðin að illa hirtur slóðinn upp á fjallið var torfær, sérstaklega eftir vorleysingarnar þegar vatn streymdi yfir stíginn og pollar mynduðust á honum. Hópur erlendra sjálfboðaliða hefur unnið að endurbótunum á göngustígum Esjunnar, Reykvíkingum og öðrum þeim sem ganga Esjuna til ánægju. MYNDATEXTI Tekið til hendinni Sarah og Roger unnu hörðum höndum við gerð ræsis meðfram göngustígnum. Einbeitingin skín úr augum þeirra beggja.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar