Húni ll

Margrét Þóra Þórsdóttir

Húni ll

Kaupa Í körfu

Um 300 manns fóru í siglingu með Húna II, bát Iðnaðarsafnsins á Akureyri nú um verslunarmannahelgina. Hollvinir Húna bjóða nú í kvöld og tvö næstu miðvikudagskvöld upp á kvöldsiglingar með bátnum í samstarfi við Minjasafnið. Lagt verður af stað kl. 19.30 frá Torfunefsbryggju og siglt í um eina og hálfa klukkustund, allt út fyrir mörk bæjarins að útgerðarstöðvunum í Jötunheimum og Þórsnesi. MYNDATEXTI: Saga og sigling Boðið verður upp á ókeypis siglingu með leiðsögn um borð í Húna II í kvöld og í leiðinni gefst kostur á að renna fyrir fiski. Þessar dömur fóru í eina sjóferð á dögunum og voru heldur betur hissa þegar þær handléku fenginn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar