Erlendir ferðamenn gá til veðurs

Erlendir ferðamenn gá til veðurs

Kaupa Í körfu

ÞAÐ VAR nokkuð dimmt yfir höfuðborginni í gær enda rigning og hiti varla nema rétt um 10°. Á morgun á hins vegar að létta til suðvestanlands samkvæmt spánni þótt áfram verði úrkoma fram eftir degi á norðaustanverðu landinu. Ferðamenn sem voru á göngu um Reykjavík í gær og litu til veðurs undan regnhlífunum geta því skoðað sig um án regnfatnaðar í dag en spáð er allt að 18° hita, hlýjast verður suðaustanlands.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar