Undirbúningur fyrir Gay Pride

Eyþór Árnason

Undirbúningur fyrir Gay Pride

Kaupa Í körfu

OPNUNARHÁTÍÐ Hinsegin daga fer fram í Loftkastalanum í kvöld og mun borgarstjórinn í Reykjavík ávarpa hátíðina. Dagskrá í tengslum við hátíðina hófst þó í fyrradag með dragkeppni í Þjóðleikhúskjallaranum og í gær var m.a. haldinn Evróvisjón-dansleikur á Nasa. Dagskráin nær svo hámarki á laugardaginn þegar Guðrún Ögmundsdóttir þingkona mun flytja ræðu í Lækjargötunni að lokinni gleðigöngunni sem leggur af stað frá Hlemmi kl. 14. MYNDATEXTI: Sjálfboðaliðar unnu hörðum höndum við að gera klárt fyrir hátíðina er ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið um verkstæði Gay Pride-samtakanna í gamla 66° norður-húsinu við Skúlagötu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar