Framkvæmdir við BSÍ

Brynjar Gauti

Framkvæmdir við BSÍ

Kaupa Í körfu

FRAMKVÆMDIR við nýja bensínstöð Esso á lóð nálægt Umferðarmiðstöðinni eru komnar á fullt að nýju en þær voru stöðvaðar undir lok síðasta mánaðar að beiðni borgaryfirvalda þar sem tilskilin leyfi höfðu ekki fengist. Að sögn Gísla Marteins Baldurssonar, formanns umhverfisráðs Reykjavíkurborgar, gaf byggingarfulltrúinn í Reykjavík út takmarkað byggingarleyfi til handa Esso um mánaðamót. Spurður hvað felist í takmörkuðu byggingarleyfi segir Gísli Marteinn það m.a. þýða að breyti borgin afstöðu sinni til svæðisins þurfi fyrirtækið að skila lóðinni í því ástandi sem hún var áður en framkvæmdir hófust.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar