Sólon passar

Margrét Þóra Þórsdóttir

Sólon passar

Kaupa Í körfu

Sólon passar dótið | Sólon, fullu nafni Sólon Islandus, er 12 ára gamall dalmatíuhundur í eigu Óla G. Jóhannssonar listmálara á Akureyri. Óli hefur átt hundinn í áratug og hann er mikið gæðablóð. Vinnustofur Óla eru í gömlu sambandsverksmiðjunum á Gleráreyrum, nú stendur til að rífa allar byggingar á svæðinu því fyrirhugað er að stækka verslunarmiðstöðina Glerártorg. Við það missir Óli vinnustofu sína, en þangað til má gera ráð fyrir að Sólon passi dótið hans vel og vandlega svo sem hans er von og vísa.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar