Gunnar Torfason, verkefnisstjóri

Eyþór Árnason

Gunnar Torfason, verkefnisstjóri

Kaupa Í körfu

ENDURBÆTUR á ytra byrði Þjóðleikhússins standa nú yfir en leyfi fékkst til að vinna hrafntinnu úr Hrafntinnuhrygg við Kröflu til endurgerðar á steiningu hússins. Kvarts- og hrafntinnusalli verða meginuppistaðan í lit hússins en ætlunin var að hafa silfurberg á ákveðnum hlutum þess. Af því mun þó ekki verða að sögn Gunnars Torfasonar verkefnisstjóra þar sem nánast ómögulegt sé að nálgast silfurberg sem er sjaldgæf steintegund. Þannig séu þær silfurbergsnámur sem notaðar voru á sínum tíma til steiningar á Þjóðleikhúsinu uppurnar en þær voru í Hoffellslandi í Hornafirði. MYNDATEXTI: Gunnar Torfason, verkefnisstjóri, segir illmögulegt að nálgast silfurberg til viðgerða á Þjóðleikhúsinu

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar