Löndun úr Guðmundi í Nesi

Þorgeir Baldursson

Löndun úr Guðmundi í Nesi

Kaupa Í körfu

FRYSTITOGARINN Guðmundur í Nesi landaði í vikunni grálúðu og karfa á Akureyri. Aflaverðmæti var um 80 milljónir króna. Aflaverðmæti skipsins frá áramótum er um 680 milljónir. Togarinn er nú kominn í slipp á Akureyri og byrjar veiðar að nýju um mánaðamótin, þegar nýtt kvótaár hefst. Frystihús Brims hefur verið lokað, en tekið er mánaðarlangt sumarfrí að venju. Ísfiskskipin hafa verið stopp á meðan, en veiðar hefjast á ný í næstu viku og verður starfsemin komin í fullan gang um eða upp úr mánaðamótum. Tjaldur er nýkominn úr slippi og Sólbakur er þar enn, en bæði skipin hefja veiðar fljótlega. MYNDATEXTI: Löndun Löndunargengið undirbýr löndun úr Guðmundi í Nesi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar