Wladimir Kaminer rithöfundur

Jim Smart

Wladimir Kaminer rithöfundur

Kaupa Í körfu

Rússinn Wladimir Kaminer, einn allra vinsælasti rithöfundur Þýskalands um þessar mundir er staddur á landinu ásamt Olgu konu sinni í boði Goethe Institut og Eddu útgáfu. Hann ætlar að lesa úr verkum sínum í Bókabúð Máls og menningar að Laugavegi 18 í kvöld kl. 21, og verður uppákoman eflaust hin frjálslegasta, en Kaminer er þekktur fyrir alls kyns uppátæki. Þorsteinn Guðmundsson leikari mun svo lesa upp úr bók Kaminer, Plötusnúður Rauða hersins, sem nýlega kom út á íslensku. MYNDATEXTI. Wladimir Kaminer ásamt Olgu konu sinni. Hann ætlar að segja Íslendingum ferðasögur í kvöld.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar