Leslie J. Crofford

Jim Smart

Leslie J. Crofford

Kaupa Í körfu

LESLIE J. Crofford, einn helsti sérfræðingur heims í vefjagigt, var hér á landi á ráðstefnu samtaka gigtlækna á Norðurlöndunum. Ráðstefnunni lauk nú um helgina en þar kynntu vísindamenn sem stunda rannsóknir á gigtsjúkdómum niðurstöður sínar. Um 80 fyrirlesarar fluttu erindi en 500 manns sóttu ráðstefnuna. Vefjagigt lýsir sér í langvarandi verkjum eða stirðleika í vöðvum og almennri þreytu og er sjúkdómurinn algengari hjá konum en körlum en u.þ.b. 10 konur fá hann á móti hverjum einum karli. MYNDATEXTI: Leslie J. Crofford hefur m.a. skoðað áhrif streitu á verki gigtarsjúklinga.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar