Norðlingaskóli, skólasetning og grillveisla

Brynjar Gauti

Norðlingaskóli, skólasetning og grillveisla

Kaupa Í körfu

NORÐLINGASKÓLI í Norðlingaholti var settur í gær og þar með hófst formlega annað starfsár skólans en hann er nýjasti grunnskólinn í Reykjavík. Nemendum skólans hefur fjölgað umtalsvert en nú eru skráðir þar til náms 103 nemendur samanborið við 40 nemendur undir lok síðasta starfsárs. Sif Vígþórsdóttir, skólastjóri Norðlingaskóla, segir að gert sé ráð fyrir töluverðri fjölgun nemenda þegar líður á skólaárið enda sé hann staðsettur í nýju hverfi sem byggist hratt upp. MYNDATEXTI: Við setningu Norðlingaskóla í Norðlingaholti í gær var nemendum, foreldrum og starfsmönnum skólans boðið í grillveislu. Elsa Karen sem er 6 ára, og er því að setjast á skólabekk í fyrsta sinn, var ánægð með veisluhöldin og hlakkaði til að fara að læra meira.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar