Nýr vefur opnaður

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Nýr vefur opnaður

Kaupa Í körfu

ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnaði með formlegum hætti vefinn www.framhald.is við hátíðlega athöfn í gær. Að baki framhaldi.is standa Auðbergur Daníel Hálfdánarson, Elvar Örn Þormar, Hanus Jacobsen og Jón Davíð Davíðsson, sem allir eru á lokaári á hagfræðibraut í Verslunarskóla Íslands. Að sögn þeirra félaga er Framhald.is kynningarvefur hannaður af ungu fólki fyrir ungt fólk, en vefnum er ætlað að auðvelda námsfólki að finna og velja bæði rétta skólann og námsbrautina. MYNDATEXTI: Elvar Örn Þormar, Auðbergur Daníel Hálfdánarson, Hanus Jacobsen og Jón Davíð Davíðsson, nemar á lokaári hagfræðibrautar VÍ, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir við opnun vefjarins www.framhald.is í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar