Kristel Evu þykir berin góð

Hafþór Hreiðarsson

Kristel Evu þykir berin góð

Kaupa Í körfu

Húsavík | Það virðist ætla að verða gott berjaár í Kelduhverfi í ár ef svo heldur fram sem horfir með berjasprettuna. Kristel Eva Gunnarsdóttir er ung Húsavíkurdama sem þykir berin góð og er hún sótti ömmu sína og afa heim í sumarhús þeirra í Sultum um helgina fékk hún nóg af þeim í gogginn. Í Sultum er allgott berjaland og mikið af berjum í ár að sögn þeirra Sultarsystra sem þar dvöldu við berjatínslu um helgina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar