Krakkar úr Patreksskóla á leið til útlanda

Eyþór Árnason

Krakkar úr Patreksskóla á leið til útlanda

Kaupa Í körfu

FIMMTÁN krakkar, úr áttunda bekk Patreksskóla á Patreksfirði, héldu til Kaupmannahafnar í morgun, en ferðin er verðlaun í samkeppni sem haldin var á vegum samtakanna Landsbyggðarvinir í Reykjavík og nágrenni og nefnist "Unglingalýðræði í sveit og bæ". Verkefnið sem krakkarnir tóku þátt í skiptist í tvo hluta. Fyrri hlutinn var einstaklingsverkefni sem fólst í ritgerðarvinnu og átti að lýsa hvaða augum krakkarnir líta sína heimabyggð og hvað þeim finnst þurfa að bæta til að þau vilji setjast þar að. Síðari hlutinn var hópverkefni þar sem vinna átti úr þeim úrlausnum sem krakkarnir komu með. MYNDATEXTI: Verðlaunaferð Krakkarnir úr áttunda bekk Patreksskóla voru fullir tilhlökkunar þegar þeir héldu utan til Kaupmannahafnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar