Loðnir og ljúffengir

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Loðnir og ljúffengir

Kaupa Í körfu

Þegar hausta tekur eiga veður það til að verða válynd, vindar sviptasamir og sandalarnir sem reyndust svo traustur vinur í gegnum sumarið sýna sig nú sem allt annað en heppilegan fótabúnað. Tími hlýrri skófatnaðar er kominn á ný og hvað er hentugra fimum fótum í haustnæðingnum en dömulegir skór með ljúfum loðkraga? Hvort sem hælarnir eiga að vera háir eða lágir og stígvélabrúnin að nema við ökkla eða hné kitlar ljúfur loðkraginn skemmtilega og setur sparilegan svip á jafnvel hversdagslegasta klæðnað. MYNDATEXTI Kuldaboli Frost bítur örugglega ekki á þessum ooofurmjúku skóm og svo má bretta þá niður. 38 þrep. 45.500 kr.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar