Akureyrarvaka

Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

Akureyrarvaka

Kaupa Í körfu

LISTASUMRI á Akureyri lýkur í dag með Akureyrarvöku. Hún var reyndar sett í Lystigarðinum í gærkvöldi en í dag rekur hver atburðurinn annan víða um bæinn. Dagskránni voru gerð nokkur skil í blaðinu í gær, en rifja má upp að í bítið býður Sundlaug Akureyrar öllum sem vilja í sund, á milli kl. 8 og 12, myndlistarviðburðir verða margir í bænum, svo og tónlist af öllum gerðum. MYNDATEXTI Tónaflóð Leiksvið var í gær sett upp neðst í Kaupvangsstræti, Listagilinu, en þar fara fram óperutónleikar í kvöld sem BM Vallá býður til. Sama efnisskrá var flutt á Menningarnótt í Reykjavík við góðar undirtektir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar