Akureyrarvaka

Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

Akureyrarvaka

Kaupa Í körfu

LISTASUMRI á Akureyri lýkur í dag með Akureyrarvöku. Hún var reyndar sett í Lystigarðinum í gærkvöldi en í dag rekur hver atburðurinn annan víða um bæinn. Dagskránni voru gerð nokkur skil í blaðinu í gær, en rifja má upp að í bítið býður Sundlaug Akureyrar öllum sem vilja í sund, á milli kl. 8 og 12, myndlistarviðburðir verða margir í bænum, svo og tónlist af öllum gerðum. MYNDATEXTI Afturhvarf til fortíðar Gras þekur nú hluta Ráðhústorgsins á ný, reyndar tímabundið, en þar verður sleginn lokatónninn í Listasumri á Akureyri með lokahátíð fjölbreyttrar Akureyrarvöku í kvöld

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar